Fara beint í meginmál

Um Sysadmin

Lítið fyrirtæki sem sér um upplýsingatækni annarra fyrirtækja.

Sysadmin er eins manns fyrirtæki. Það þýðir að sá sem svarar í símann er sá sami og setti upp netþjóninn, setti afritið á sinn stað og veit hvers vegna prentarinn á annarri hæð er á sínu eigin neti.

Ég vinn með fyrirtækjum sem eru of lítil til að halda eigin upplýsingatæknideild, en nógu háð kerfum sínum til að tapa alvöru peningum þegar eitthvað stoppar.

Áherslan er lögð á að halda hlutunum einföldum, skjalfestum og fyrirsjáanlegum: kerfi sem hægt er að útskýra, afrit sem hægt er að treysta og reikningur sem kemur ekki á óvart.

Hvern þú talar við

Einar Már Eggertsson

Einar Már Eggertsson

Eigandi og kerfisstjóri

Reyndur kerfisstjóri og vefþróunaraðili með sérhæfingu í gagnaöryggi og rekstri tölvukerfa frá árinu 2012. Ýtarleg þekking á Windows Server, Linux og macOS umhverfum, ásamt uppsetningu á öruggum net- og skýjalausnum. Veiti heildstæða upplýsingatækniþjónustu fyrir fyrirtæki sem krefjast hás uppitíma og öruggs rekstrarumhverfis.

Hvernig ég vinn

Mannamál
Ég útskýri hlutina án þess að fela mig á bak við tækniorð. Þú átt að geta tekið upplýsta ákvörðun án þess að vera kerfisstjóri sjálfur.
Skjalað
Allar uppsetningar eru skjalaðar. Þú átt kerfin þín og aðgangana að þeim — ekki ég.
Prófað
Afrit sem aldrei hefur verið endurheimt er ekki afrit heldur ágiskun. Ég prófa þau reglulega.
Hreinskilið
Ef verkefni hentar mér ekki, eða þú þarft ekki það sem þú baðst um, þá segi ég það frekar en að selja þér það.

Ertu að leita að nýjum þjónustuaðila?

Segðu mér stuttlega hvað þú ert með í rekstri í dag og hvað er helst að angra þig. Ég fer yfir stöðuna með þér án endurgjalds og segi þér hreint út hvort ég sé rétti aðilinn í verkið.