Fara beint í meginmál

Þjónusta

Allt sem lítið fyrirtæki þarf til að tölvukerfin haldi áfram að virka — hvort sem þú vilt fastan rekstur eða aðstoð við eitt afmarkað verkefni.

Afritun og endurheimt

Afrit sem virka þegar á reynir — ekki bara afrit sem eru til.

Ég set upp afritun sem nær yfir gögnin sem reksturinn stendur og fellur með: skjöl, gagnagrunna, tölvupóst og netþjóna. Afritin eru geymd á fleiri en einum stað og endurheimt er prófuð reglulega, svo þú komist að því að afritið virki áður en þú þarft á því að halda — ekki eftir á.

  • Sjálfvirk dagleg afritun, bæði á staðnum og utan hans
  • Reglulegar endurheimtarprófanir með skýrslu um stöðuna
  • Vörn gegn gagnagíslatöku með óbreytanlegum afritum
  • Viðbragðsáætlun ef netþjónn, tölva eða húsnæði verður óaðgengilegt

Rekstur og notendaþjónusta

Eitt símanúmer þegar eitthvað hættir að virka.

Tölvudeild í áskrift, án þess að ráða tölvudeild. Ég sé um daglegan rekstur, aðstoða starfsfólkið þegar eitthvað stoppar og fylgist með kerfunum svo vandamál séu leyst áður en þau verða að stöðvun.

  • Aðstoð við starfsfólk í síma, með fjartengingu eða á staðnum
  • Uppsetning, viðhald og endurnýjun á vinnustöðvum
  • Eftirlit með kerfum og fyrirbyggjandi viðhald
  • Fast mánaðargjald eða tímavinna — þú velur

Microsoft 365 og skýjaþjónusta

Póstur, skjöl og samvinna sem virka alls staðar.

Uppsetning, flutningur og rekstur á Microsoft 365 eða Google Workspace. Ég flyt póstinn og skjölin yfir án þess að reksturinn stöðvist, set upp aðgangsstýringar sem meika sens og fer yfir að leyfin sem þú borgar fyrir séu þau sem þú þarft í raun.

  • Flutningur á pósti og skjölum frá eldri kerfum
  • SharePoint, Teams og OneDrive sett upp með skipulagi sem fólk ræður við
  • Aðgangsstýring, tveggja þátta auðkenning og skilyrt aðgengi
  • Yfirferð á leyfum svo þú borgir ekki fyrir það sem enginn notar

Netkerfi og þráðlaust net

Nettenging sem dettur ekki út á versta tíma.

Hönnun, uppsetning og rekstur á neti fyrir skrifstofur, verkstæði og verslanir. Þráðlaust net sem nær yfir allt húsnæðið, öruggar fjartengingar fyrir þá sem vinna heiman frá, og aðskilin net svo gestir og greiðslukerfi séu ekki á sama neti og bókhaldið.

  • Þráðlaust net sem nær alls staðar, líka í kjallaranum
  • Beinar, switchar og eldveggir settir upp og viðhaldið
  • VPN og örugg fjartenging fyrir fjarvinnu
  • Aðskilin net fyrir gesti, greiðslukerfi og innri kerfi

Öryggi og uppfærslur

Grunnvarnirnar í lagi, allan ársins hring.

Flest innbrot nýta sér gamlar uppfærslur og veik lykilorð frekar en flóknar árásir. Ég held vélunum uppfærðum, set upp vörn gegn spilliforritum, kem á tveggja þátta auðkenningu og fer reglulega yfir hverjir hafa aðgang að hverju.

  • Sjálfvirkar öryggisuppfærslur á stýrikerfum og hugbúnaði
  • Vörn gegn spilliforritum og gagnagíslatöku
  • Tveggja þátta auðkenning og lykilorðastjórnun
  • Yfirferð á aðgangsheimildum, þar á meðal hjá fólki sem er hætt

Netþjónar og sýndarvæðing

Kerfin sem allt annað hvílir á.

Uppsetning og rekstur á Windows- og Linux-netþjónum, hvort sem þeir standa í skápnum hjá þér eða keyra í skýinu. Sýndarvæðing sem nýtir vélbúnaðinn betur, eftirlit sem lætur vita áður en diskur fyllist, og skjölun svo einhver annar gæti tekið við ef á þyrfti að halda.

  • Windows Server og Linux — uppsetning, rekstur og uppfærslur
  • Sýndarvæðing með Proxmox, Hyper-V eða VMware
  • Eftirlit með álagi, diskaplássi og bilunum í vélbúnaði
  • Skjölun á kerfunum, svo þú sért ekki háður einni manneskju

Vefur, lén og póstur

Lénið þitt, pósturinn þinn og vefurinn á einum stað.

Ég sé um lén, DNS, póstleiðir og hýsingu á vefsíðum fyrir lítil fyrirtæki. Það þýðir að þú veist hver á lénið þitt, hvert pósturinn fer og hvern á að hringja í ef vefurinn dettur út.

  • Skráning og endurnýjun á lénum, þar á meðal .is
  • DNS-uppsetning og póstleiðir sem enda ekki í ruslpóstinum
  • Hýsing og viðhald á vefsíðum lítilla fyrirtækja
  • SSL-skírteini með sjálfvirkri endurnýjun

Ekki viss hvað þú þarft?

Hringdu og lýstu stöðunni. Ég segi þér hreint út hvað er aðkallandi, hvað má bíða og hvað þú þarft alls ekki.